Fimleikar | 3. desember 2004
Haustmót FSÍ
Haustmót Fimleikasambands Íslands fór fram 7. nóvember og fóru vaskar stelpur frá Fimleikadeild Keflavíkur þangað. Í 5 þrepi 9-10 ára fékk Eva Rós Guðmundsdóttir gullverðlaun með 34,271 í samanlögðu og Elva Dögg Sigurðardóttir bronsverðlaun með 32,767 samanlagt. Óskum við þeim til hamingju með það.