Gymnova Þrepamót FSÍ
Helgina 11. og 12. febrúar fór fram Gymnova þrepamót. Á laugardeginum var keppt í 3. og 4. þrepi íslenska fimleikastigans en á sunnudeginum var keppt í 5. þrepi.
Alls fóru 15 stúlkur frá fimleikadeildinni og náðu þær að vinna til 14 verðlauna á mótinu. Allir keppendur stóðu sig mjög vel og voru deildinni til sóma. Megum við vera stollt af þessum frábæru stúlkum sem tóku þátt á þessu móti.
Þær sem unnu til verðlauna voru:
3.þrep 14 ára
Selma Kristín Ólafsdóttir, 2. sæti á slá, 2. sæti samanlagt
4.þrep 11 ára
Elva Dögg Sigurðardóttir, 3. sæti á stökk, 3. sæti á tvíslá.
Þorgerður Magnúsdóttir, 2. sæti á tvíslá, 3. sæti á slá, 2. sæti samanlagt.
4.þrep 12 ára
Eva Rós Guðmundsdóttir, 3. sæti á tvíslá, 2. sæti samanlagt.
4.þrep 13 ára
Berglind Björk Sveinbjörnsdóttir, 1. sæti á tvíslá.
5.þrep 12-13 ára
Hulda Sif Gunnarsdóttir, 1. sæti á tvíslá, 3. sæti samanlagt.
Arndís Snjólaug Ingvarsdóttir, 2. sæti samanlagt.
Brynja Rúnarsdóttir, 2. sæti á tvíslá.