Fréttir

Góður árangur á þrepamóti 2 FSÍ
Fimleikar | 16. febrúar 2016

Góður árangur á þrepamóti 2 FSÍ

Þrepamót 2 var haldin nú um helgina í Gerplu

Fimleikadeild Keflavíkur átti 6 keppendur þar sem stóðu sig öll með stakri prýði.

Keppt var í 3.2. og 1. Þrepi.

Svanhildur Reykdal Kristjánsdóttir og Ingibjörg Birta Jóhannsdóttir náðu 2.þrepinu.

Svanhildur Reykdal Kristjánsdóttir lenti í 5.sæti í samanlögðum árangri

Klara Lind Þórarinsdóttir lenti í 3.sæti á slá og 3.sæti á gólfi í 3.þrepi 12 ára.

Samúel Skjöldur Ingibjargarson og Atli Viktor Björnsson voru að keppa í fyrsta skipti í 3.þrepi og stóðu sig einstaklega vel. Þetta er í fyrsta skipti sem að Fimleikadeild Keflavíkur á drengi í 3. þrepi, því ber að fagna.

Frábær árangur hjá fimleikakrökkunum okkar.