Góður árangur á Íslandsmóti í 1. og 2. þrepi
Fimleikasamband Íslands ákvað að fresta Íslandsmótinu í þrepum sem halda átti á Akureyri ný liðna helgi vegna ófærðar. Í samráði við mótshaldara mun 5-3 þrep keppa helgina 4.-6. apríl nk á Akureyri.
Aftur á móti var mótshluti 1-2 þreps haldið í Ármanni sunnudaginn 23. mars og fóru 7 stelpur og kepptu þar.
Það kepptu 3 stelpur í 1. þrepi 15 ára og eldri. Þær stóðu sig allar mjög vel. Hún Lilja Björk Ólafsdóttir varð Íslandmeistar með 55,233 samanlagt.
Í 2. þrepi 14 ára og eldri kepptu 4 stelpur og stóðu þær allar sig virkilega vel. Hún Katla Björk Ketilsdóttir hafnaði í þriðja sætir með 52,067 samanlagt. Svo var það Alísa Rún Andrésdóttir sem hafnaði í þriðja sæti með 53,800 samanlagt í flokki 13 ára og yngri.
Virkilega flott mót hjá fulltrúum Keflavíkur.
Öll úrslit má finna hér:http://armenningar.is
Áfram Keflavík