Fréttir

Fimleikar | 11. nóvember 2009

Glæsilegur árangur á Haustmóti FSÍ

Laugardaginn 7.nóvember kepptu 6 stúlkur frá fimleikadeild Keflavíkur á Haustmóti
FSÍ. Þær sem kepptu á mótinu eru þær Agnes Sigurþórsdóttir, Eydís Ingadóttir,
Ingibjörg Þóra Þórarinsdóttir, Ólöf Rún Guðsveinsdóttir, Sólný Sif Jóhannsdóttir og
Thelma Hrund Helgadóttir. Stúlkurnar kepptu í 4.þrepi íslenska fimleikastigans og
stóðu þær sig allar mjög vel. Eydís Ingadóttir komst á verðlaunapall og hreppti hún
1.sæti samanlagt á öllum áhöldum, glæsilegt hjá henni :)