Frítt inn á Fimleikasýningu - fimmtudaginn 15.okt klukkan 18:00
Fimleikadeild Keflavíkur hefur hlotnast sá heiður að fá í heimsókn danskan fimleikahóp frá Odense. Þessi sýningarhópur hefur verið starfandi í tvö ár og sýnt víðsvegar um heiminn, einnig sýnir hópurinn um alla Danmörku. Sýningin inniheldur 30-40 mínútna prógram er samanstendur af dansi, stökkæfingum á gólfi og trampólíni sem og akróbatíkæfingum.
Í hópnum eru stúlkur á aldrinum 5 – 19 ára og munu þær koma til Keflavíkur fimmtudaginn 15.okt. og halda sýningu í A-sal íþróttahús Reykjanesbæjar við Sunnubraut. Sýningin hefst klukkan 18:00 og viljum við hvetja unga sem aldna til að mæta.
Frábær skemmtun fyrir alla aldurshópa - FRÍTT inn