Fréttir

Fimleikar | 4. febrúar 2010

Framundan hjá fimleikadeildinni

Það er nóg um að vera framundan hjá krökkunum í deildinni.  Sunnudaginn 7. febrúar ætla stúlkurnar úr fjólubláum að keppa á Íslandsmóti unglinga í hópfimleikum sem fram fer í Gerplu.

Helgina 13. og 14. febrúar fara svo stúlkurnar í 3. og 4. þrepi og keppa á Þrepamóti FSÍ.  Mótið fer fram í fimleikahúsi Ármanns í Laugardal.  Þar ætla 10 stúlkur að halda uppi heiðri Keflvíkinga.

Stúlkurnar eiga án efa eftir að standa sig mjög vel og óskum við þeim góðs gengis.