Fréttir

Fimleikar | 11. mars 2008

Fimleikafjör

Áfram konur og allir karlmenn sem langar að vera með.

Vá hvað það var gaman að sprikla með halastjörnunum. Það var fámennur en léttur hópur sem mætti á æfingu með halastjörnunum í Garðabæ síðastliðið Sunnudagskvöld. Allir að bæta við sig nýjum æfingum og átökin í þrekinu á eftir urðu til þess að sumar okkar áttu í mestu vandræðum með stigann uppúr íþróttasalnum.

Annars eru æfingar aftur komnar á fullt og allir velkomnir að slást í hópinn. Endilega kíkið við ef ykkur langar að prófa. Karlmenn jafnt sem konur. Æfingar eru á þriðjudögum klukkan 18:00-19:30 og á fimmtudögum 18:30 -20:30. Það er einnig í vinnslu að fá mögulega að slást í hópinn með halastjörnunum á Sunnudagskvöldum 20:00-22:00. Það er alls ekki nauðsynlegt að hafa verið í fimleikum - eina sem þarf er áhugi.

Sjáumst hress

Þjálfarar.