Fréttir

Fimleikar | 11. janúar 2008

Fimleikafjör

Kæru konur,

Takk kærlega fyrir áhugann, þetta getur ekki orðið annað en stórgaman með svona góðri þátttöku.

Þátttakan í nýju tímunum okkar fór fram út björtustu vonum. Núna sitjum við yfir málum og erum að setja saman hóp þjálfara til að stýra tímunum og skipuleggja skemmtana/æfingaskrána okkar.

Við munum taka alla sem við getum inn en ef það næst ekki er það tímasetningin á tölvupóstinum/skráningunni sem ræður.

Við munum setja hér inn fréttir um leið og skipulagið liggur fyrir og senda út skilaboð á ykkur allar

Kveðja

Þjálfarar