Fréttir

Fimleikar | 3. janúar 2008

Fimleikafjör

Fimleikafjör – Vegna fjölda áskoranna

Nú í janúar byrjum við með tíma í fimleikum fyrir konur frá 18 ára aldri. Allar velkomnar sem langar að prófa, engin fimleikakunnátta nauðsynleg. Skemmtileg líkamsrækt og fimleikaæfingar við hæfi hvers og eins.

Ef þátttaka verður næg verða æfingar 2 í viku kl. 18:00-19:30 á þriðjudögum og kl.18:30-20:30 á fimmtudögum, það er einnig kostur að æfa einu sinni í viku.

Námskeiðið verður í sex vikur, hefst þriðjudaginn 15.janúar 2008. Kennari verður meðal annara Viveka Grip, sænskur þjálfari sem er að hefja störf hjá félaginu.

Tekið er við skráningum í tölvupósti á elin.islaug@keflavik.is Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og verður raðað eftir því í hvaða röð skráningar berast.

Námskeiðið kostar 13.000 miðað við æfingar 2 í viku (3,5 klst.) og 9.000 miðað við 1 skipti á viku.