Eurogym 2010
Dagana 9. - 16. júlí voru 26 iðkendur, 2 þjálfarar og 5 mæður á Eurogym, sem er fimleikahátíð sem haldin er á tveggja ára fresti. Í þetta sinn var hátíðin í Óðinsvé, Danmörku. Hópurinnn stóð sig mjög vel og voru krakkarnir deildinni til sóma. Við fórum á 5 mismunandi námskeið, Tai Chi, funk dansi, stórt trampólín, tangó robic og cross fit. Einnig sýndi hópurinn atriðið sitt tvisvar sinnum og þeim var vel tekið. Einnig var mjög margt um að vera og voru krakkrnir duglegir að taka þátt í öllu því sem var í boði.
Fimleikadeildin þakkar krökkunum kærlega fyrir ferðina og hversu vel þau stóðu sig.