Dómaranámskeið í hópfimleikum
Dagana 4. – 6. janúar var haldið dómaranámskeið í Team gym hópfimleikum. Keflavík eignaðist 4 nýja dómara, sem er frábært. Dómararnir eru Berglind Björk Sveinbjörnsdóttir, Brynja Rúnarsdóttir, Heiðrún Rós Þórðardóttir og Kristín Sigurðardóttir. Einnig er María Óladóttir, framkvæmdastjóri, dómari. Við óskum stúlkunum til hamingju með dómararéttindin.