Dima snýr aftur til Fimleikadeildar Keflavíkur
Það er með mikilli ánægju sem Fimleikadeild Keflavíkur tilkynnir að Dmitry „Dima“ Voronin hefur verið ráðinn á nýjan leik sem fimleikaþjálfari hjá deildinni. Dima hefur áður starfað hjá okkur í átta ár, þar sem hann skapaði sér orðspor sem metnaðarfullur, reyndur og árangursríkur þjálfari. Hann snýr nú aftur til okkar eftir nokkur ár hjá Fimleikafélaginu Björk, þar sem hann hélt áfram að þróa sínar aðferðir og miðla sinni reynslu.
Mikil reynsla og alþjóðlegur bakgrunnur
Dima hóf fimleikaferil sinn aðeins sjö ára gamall í Hvíta-Rússlandi og var strax valinn í Ólympíureservuskólann. Hann kláraði nám við "Supreme Sport School" og sama ár var hann valinn í landslið Hvíta-Rússlands og árið 1986 varð hann Hvíta-Rússlandsmeistari. Hann útskrifaðist sem íþróttafræðingur árið 1992 úr "Mogilev State Pedagogical University".
Hann hóf þá störf við fimleikaþjálfun í íþróttaskólanum "Olympic Reseve" og þjálfaði þar bæði stráka og stelpur á öllum getustigum – frá byrjendum til landsliðsfólks.
Meðal afreka hans er að hafa tekið þátt í undirbúningi landsliðs Hvíta-Rússlands fyrir Evrópumeistaramót og Ólympíuleika og komið að þjálfun margra verðlaunahafa á heimsleikjum ungmenna og heimsmeistaramótum. Árið 2004 flutti hann til Íslands þar sem hann starfaði fyrst hjá Fimleikafélaginu Björk og síðar hjá Fimleikadeild Keflavíkur (2013-2020), og hefur hann í bæði skiptin átt stóran þátt í að koma stúlkum í landslið Fimleikasambands Íslands.
Sterkt teymi með Natöliu Voronin
Dima er giftur Natöliu Voronin, sem hefur um árabil verið lykilmaður í þjálfun áhaldafimleika hjá Fimleikadeildar Keflavíkur. Saman mynda þau afar öflugt teymi sem hefur náð frábærum árangri í áhaldafimleikum hér á landi. Þau hafa leitt fjölda iðkenda alla leið í landslið Íslands og skapað sterka menningu þar sem metnaður, gæði og fagþekking ráða ríkjum.
Horft til framtíðar með tilhlökkun
Við hjá Fimleikadeild Keflavíkur hlökkum til að fá Dima aftur í okkar hóp í ágúst og erum sannfærð um að hans nærvera, reynsla og fagmennska muni efla þjálfarateymið og styðja við áframhaldandi vöxt og framgang deildarinnar. Við bjóðum Dima hjartanlega velkominn aftur heim!