Breytingar á þjálfaramálum
Það hafa átt sér breytingar stað í þjálfaramálum deildarinnar. Petruta Musat hefur hætt störfum og snúið til heimalands síns. Við þökkum henni fyrir vel unnin störf og óskum henni alls hins besta.
Þær stöllur Eva Dögg Sigurðardóttir, Eva Hrund Gunnarsdóttir og Rósa Jónasdóttir hafa bæst í þjálfarahópinn okkar og við bjóðum þær innilega velkomnar.