Fréttir

Fimleikar | 11. mars 2008

Bikarmót í hópfimleikum

Bikarmót í hópfimleikum fór fram 23 febrúar síðastliðin. Mótið var haldið á Selfossi og fór eitt lið frá Keflavík. Stúlkurnar voru félaginu til sóma og stóðu sig mjög vel. Stúlkurnar unnu til silfurverðlauna í dansi og einnig á trampólíni. Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn á mótinu.
Einkunnir þeirra voru eftirfarnadi:
Dans: 7,75
Dýna: 6,30
Trampólín: 6,85

Liðið samanstóð af: Arndísi Snjólaugu, Berglindi Björk, Brynju, Díönu Karen, Elísu, Elvu Björk, Guðrúnu Mjöll, Hólmfríði, Huldu Sif, Kristínu, Olgu Ýr, Selmu Kristínu, Sigríði Evu og Sunnevu Fríðu.

.