Fréttir

Fimleikar | 6. mars 2007

Bikarmót FSÍ

Bikarmót FSÍ í áhaldafimleikum fór fram helgina 3. og 4. mars.  Keflavík var með lið í 4 og 5 þrepi fimleikastigans.  Í 5 þrepi kepptu þær Elfa Falsdóttir, Eydís Ingadóttir, Helena Rós Gunnarsdóttir, Ingibjörg Þóra Þórarinsdóttir og Salóme Perla Beard, en þessar stelpur voru allar að keppa á sínu fyrsta FSÍ móti.  Í 4 þrepi kepptu þær Alexía Rós Viktorsdóttir, Ólöf Rún Guðsveinsdóttir, Rakel Halldórsdóttir og Sólný Síf Jóhannsdóttir en þær voru að keppa í fyrsta skipti í 4 þrepi.

 

.

Stelpurnar í 5 þrepi.

  

Stelpurnar í 4 þrepi.