Fréttir

Fimleikar | 8. mars 2005

Bikarmót FSÍ

Bikarmót FSÍ var haldið helgina 5. og 6. mars en á bikarmót er liðakeppni.  Fimleikadeild Keflavíkur sendi 1 lið sem keppti í 5 þrepi fimleikastigans og urðu þær í þriðja sæti með 138 stig.  Liðið var skipað eftirtöldum stúlkum:  Sigríði Sigurðardóttur, Elvu Dögg Sigurðardóttur, Evu Rós Guðmundsdóttur, Kolbrúnu Jónu Færseth, Þorgerði Magnúsdóttur og Thelmu Guðlaugu Arnarsdóttur.  Fimleikadeild Keflavíkur sendir þessum duglegu stelpum hamingjuóskir.  Önnur úrslit og myndir má nálgast á fimleikar.is