Fréttir

Fimleikar | 4. janúar 2010

Berglind Björk fimleikakona Keflavíkur

Berglind Björk Sveinbjörnsdóttir var valin Fimleikakona Keflavíkur í hófi sem haldið var þriðjudaginn 29. desember.  Hún var einnig valin Fimleikakona Reykjanesbæjar á gamlársdag.  Berglind Björk hefur staðið sig afar vel á árinu og er fyrirmynd annarra iðkenda.  Fimleikadeild Keflavíkur óskar henni innilega til hamingju og velfarnaðar á komandi árum.