Allir stóðu sig vel á jólasýningu
Jólasýning Fimleikadeildar Keflavíkur var haldin laugardaginn 11. desember. Eins og undanfarin ár voru sýningarnar tvær og var fullt á báðum. Allir iðkendurnir stóðu sig með mikilli prýði og voru deildinni sinni til sóma. Einnig voru þrír jólasveinar sem litu við og reyndu að hoppa og skoppa með krökkunum og það vakti mjög mikla lukku.
Vikuna 13. - 17. desember verða æfingar hjá öllum hópum, eins og venjulega. Svo förum við í jólafrí og byrjum aftur af fullum krafti, þriðjudaginn 3. desember. Þá gætu einhverjar breytingar orðið á æfingatímum (fer eftir stundatöflum þjálfara), við munum láta ykkur vita af því um leið og það skýrist.
Jólakveðja
Þjálfarar og stjórn