Fréttir

Fimleikar | 28. ágúst 2009

Afhending stundaskráa

Fimleikadeildin mun í dag afhenda stundaskrár fyrir komandi vetur.  Afhendinginn fer fram í K-húsinu Hringbraut 108 frá kl. 17.00-19.00.  Á sama tíma verður einnig gengið frá greiðslum æfingagjalda.

Veittur er systkinaafsláttur, þannig að elsta barnið greiðir fullt gjald en önnur fá 25% afsl.

ATH: Einungis þeir sem hafa gengið frá æfingagjöldum hafa rétt til æfingasóknar.

Fimleikadeildin minnir á að æfingagjöld eru ekki afturkræf þegar iðkandi hefur æft í mánuð eða lengur nema um langvarandi veikindi eða slys er að ræða. 

Yfirþjálfari deildarinnar sér um skráningar iðkanda, þeir sem eiga eftir að skrá vinsamlegast sendið á tinna@keflavik.is 

Helena Rós Gunnarsdóttir innanfélagsmeistari 2009 í áhaldafimleikum.