Æskulýðsdagur Kirkjunnar
Æskulýðsdagur kirkjunnar verður í Keflavíkurkirkju á sunnudaginn 5. mars kl: 11.00. Fermingarbörn taka þátt í athöfninni með leiksýningu ásamt barnakór Keflavíkurkirkju.
Þóra Gísladóttir söngkona, börn og unglingar úr íþrótta - og ungmennafélagi Keflavíkur o.fl. koma fram og taka þátt í athöfninni.
Yngstu börnin fá efni og kennslu við sitt hæfi á sama tíma í kirkjunni.
Kaffi, djús og meðlæti eftir samveruna.
Við hvetjum alla í fimleikadeildinni til að fjölenna á þennan æskulýðsdag.
Fyrir hönd Fimleikadeildarinnar
Heiðrún Björk Sigmarsdóttir