Æfingar í maí
Það verða fimleikaæfingar út maí. Síðustu æfingar tímabilsins verða 28. maí. Við hvetjum iðkendur til að vera duglegir að mæta á þær æfingar sem eftir eru. Sumaræfingar verða í boði fyrir eldri hópa félagsins. Fyrir iðkendur á aldrinum 6 - 10 verður námskeiðið Fimleikar og fjör, sem er ,,leikjanámskeið" með fimleikaívafi. Námskeiðið er opið fyrir þá sem hafa æft fimleika og fyrir þá sem eru að prófa.
Fimleikakveðja
María Ó