Fréttir

Fimleikar | 28. maí 2007

Æfingabúðir


Í sumar mun Fimleikadeild Keflavíkur bjóða uppá æfingabúðir fyrir stúlkur fæddar 1999.  Þetta er vikutími frá 11. júní til 15. júni.   Hér er uppkast að dagskrá en hún mun ráðast af fjölda þátttakenda og aðstæðum en standa frá 08:30 – 12:00.  Markmiðið er að bjóða uppá markvissa fimleikaþjálfun í bland við skemmtun, hrista stelpurnar vel saman og hafa gaman.

Til að skrá á námskeiðið sendið tölvupóst á netfangið eik@mitt.is
Þátttökugjald er 6.000 krónur á barn og þarf að greiða áður en námskeiðið hefst.  Innifalið: ávextir, nasl og eitthvað að drekka um 11:00 og Pizza á föstudegi.

Skrá þarf stelpurnar fyrir næsta miðvikudag 30.05.2007

Þetta námskeið er auglýst með fyrirvara um næga þátttöku en stefnan er að hafa samskonar námskeið seinni hluta ágústmánaðar.  Hægt er að skrá sig á tölvupóstlista (senda mail á eik@mitt.is ) og fá senda auglýsingu í júlí-ágúst eða fylgjast með heimasíðunni okkar.  http://www.keflavik.is/Fimleikar/


Kveðja
Þjálfarar