Fréttir

Fimleikar | 2. desember 2011

Aðventumót

Aðventumót Ármanns var haldið 28. og 29. nóvember.  Fimleikadeild Keflavíkur sendi 45 stúlkur í 4, 5 og 6 þrepi íslenska fimleikastigans.  Þær voru allar sem ein glæsilegir og góðir fulltrúar fyrir sitt félag og er framtíðin björt hjá fimleikunum í Keflavík með svona stóran hóp af duglegum stúlkum.  Nokkrar stelpur náðu 3 efstu sætunum með samanlagðar einkunnir.

Edda Karlsdóttir 6.þrep 4.sæti með 61.750 samanlagt , Hanna María 5.þrep 2.sæti 55.700 samanlagt, Kolbrún Júlía Guðfinnsdóttir 4.þrep 2. sæti 49.250 samanlagt.

Einnig komu tveir bikarar heim frá 6.þrepi eldri 7.hluti 3.sæti og 5.þrepi 3.hluta 2.sæti.

Við óskum þessum stúlkum til hamingju með árangurinn.