Aðalfundur 2011
Aðalfundur Fimleikadeildar Keflavíkur var haldin þriðjudaginn 1. febrúar. Helga Hildur Snorradóttir var endurkjörin sem formaður og ný stjórn var kjörin. Í stjórn eru eftirtaldir aðilar: Helga Erla Albertsdóttir, Ingibjörg Guðjónsdóttir, Andrés Eyjólfsson, Halldóra Guðmundsdóttir, Hildur Guðjónsdóttir, Fríða María Sigurðardóttir, Ingibjörg Steindórsdóttir og Ólafur Sigurðsson.
Einnig voru 4 aðilar sem voru að hætta í sjórninni og þökkum við þeim kærlega fyrir góð störf í þágu deildarinnar. Þeir sem voru að hætta voru: Ingi Þór Einarsson, Íris Dröfn Halldórsdóttir, Eva Björk Sveinsdóttir og Sveinbjörg Sigurðardóttir.
Á dagskrá voru venjuleg aðalfundarstörf. Einnig heiðraði deildin 4 iðkendur sem stóðu sig með mikilli prýði árið 2010:
Eva Berglind Magnúsdóttir - stundar hópfimleika af miklu kappi og er yngri iðkendum góð fyrirmynd. Eva Berglind er metnaðargjörn fyrir lið sitt og leggur sig ávalt 100% fram.
Eydís Ingadóttir - var eini iðkandi Fimleikadeildar Keflavíkur sem komst inn á Íslandsmót í þrepum. Hún keppti í 4. þrepi og stóð sig mjög vel.
Helena Rós Gunnarsdóttir - var stigahæst eftir mót vetrarins. Helena Rós er alltaf jákvæð, glöð og er yngri iðkendum góð fyrirmynd. Hún var kosin Fimleikakona Keflavíkur 2010 og fulltrúi okkar í vali á íþróttamanni Reykjanesbæjar 2010.
Rakel Halldórsdóttir - var Innanfélagsmeistari Fimleikadeildar Keflavíkur 2010. Rakel stendur sig mjög vel og gaman að fylgjast með henni á næstu mótum.
Fimleikakveðja
Þjálfarar og stjórn