Fréttir

Möggumót fór fram um helgina
Fimleikar | 19. janúar 2025

Möggumót fór fram um helgina

Möggumót í áhaldafimleikum fór fram um helgina og tóku 157 stúlkur þátt á mótinu á aldrinum 6-12 ára. Möggumótið er fyrsti viðburðurinn af 40 sem Fimleikadeild Keflavíkur ætlar sér að standa fyrir í ár í tilefni 40 ára afmælisárs okkar. Möggumótið okkar er haldið ár hvert til heiðurs Margrétar Einarsdóttur stofnanda deildarinnar. 16. mars munum við svo halda Möggumót í hópfimleikum.

Keppendur í grunn- og framhaldshópum voru eingöngu keppendur frá Keflavík og fengu allir keppendur gjafabréf frá Huppu.

Í 6. þrepi eldri urðu Keflavíkurstúlkur í öðru sæti en lið Bjarkanna tók gullið með sér heim. Í 5. þrepi létt urðu Keflavíkurstúlkur einnig í öðru sæti og Ármann í því fyrsta.

Í 5. þrepi voru Ármenningar sigursælastir en Keflavíkurdömurnar lentu í öðru sæti og Bjarkirnar í því þriðja. Snædís Lind Davíðsdóttir frá Keflavík var einungis 0,8 stigum frá því að vera Möggumótsmeistari í 5. þrepi en Möggumótsmeistari mótsins var Álfdís Maley Ingvarsdóttir frá Ármanni.

Í 4. þrepi var um einstaklingskeppni að ræða, ólíkt hinum þrepunum. Fanney Erla Hrafnkelsdóttir frá Keflavík varð Möggumótsmeistari mótsins ásamt því að fá gull á tvíslá, silfur á stökki og gólfi og brons á slá. Brimdís Björk Holm var jafnhá og Fanney á stökki og fékk því einnig silfur á því áhaldi.

Fimleikadeildin ætlar að gera breytingu á Möggumótinu og færa það til hausts þar sem að mótaskráin er hlaðin á vorin en ekki á haustin. Því munum við halda Möggumót aftur á haustönn.

Við erum rosalega stolt af okkar stúlkum sem kepptu um helgina og stóðu þær sig frábærlega.

Hægt að nálgast myndir af mótinu hér.

 

Myndasafn