Fréttir

Frábær árangur á Þrepamóti 3 um helgina!
Fimleikar | 7. apríl 2025

Frábær árangur á Þrepamóti 3 um helgina!

Nú um helgina fór fram Þrepamót 3 í fimleikahúsi Bjarkanna. Keflavík sendi 8 stúlkur á mótið, 5 í 5. þrepi og 3 í 4. þrepi.

Stelpurnar áttu glæsilegan dag þar sem þó nokkrar náðu þrepinu sínu og hinar voru svo nálægt því að ná þrepi.

Veitt voru verðlaun fyrir þær sem náðu tilteknum stiga fjölda en það eru 56 stig í báðum þrepunum.

Þær sem náðu 5. þrepi voru:

  • Lisa Marie Heimisdóttir
  • Glódís Elva Sigurðardóttir
  • Íris Embla Davíðsdóttir

Elma Rós Brynjarsdóttir fékk 54.950 stig fyrir æfingar sínar og Arna Sif Adolfsdóttir náði 53.000 stigum sem er virkilega frábær árangur hjá þeim.

Þær sem náðu 4. þrepi voru þær:

  • Fanney Erla Hrafnkelsdóttir
  • Brimdís Björk Holm

Ester Valberg fékk 54.900 stig fyrir æfingar sínar og var því bara hársbreidd frá því að ná þrepinu enda hún átti frábæran dag einnig.

Við óskum stúlkunum og þjálfurum þeirra til hamingju með glæsilegan árangur á mótinu.

 

Myndasafn