Fréttir

Fimleikar | 24. mars 2026

Glæsileg frammistaða og gleði í fyrirrúmi hjá Fimleikadeild Keflavíkur

Glæsileg frammistaða og gleði í fyrirrúmi hjá Fimleikadeild Keflavíkur

Helgina 21.–22. mars fór fram Bikarmót FSÍ í áhalda- og hópfimleikum í umsjón Fjölnis. Fimleikadeild Keflavíkur átti þar marga frábæra keppendur sem stigu á stokk og sýndu hvað í þeim býr. Það sem stóð þó upp úr var ekki einungis sterk frammistaða heldur einnig gleðin, samheldnin og mikill baráttuvilji.

Guðlaug Emma Erlingsdóttir var eini keppandi Keflavíkur í áhaldafimleikum og keppti í frjálsum æfingum, auk þess að vera hluti af blönduðu liði Bjarkar og Keflavíkur. Hún stóð sig einstaklega vel og sýndi glæsilegar æfingar, sérstaklega á gólfi þar sem hún naut sín vel. Guðlaug Emma hefur einnig vakið athygli fyrir glæsilegan feril sinn sem dansari hjá Danskompaní, sem skilaði sér greinilega í framkomu hennar.

Í hópfimleikum átti Keflavík öflug og fjölmenn lið þar sem allir lögðu sig fram og nutu þess að keppa. Miklar framfarir voru augljósar og liðsheildin sterk, með einbeitingu og góðan liðanda í fyrirrúmi.

Allur 3. flokkur Keflavíkur tók þátt í mótinu.
Í liði 3. flokks 1 kepptu Alexandra Rán Tindskard, Amanda Mist C. Þórunnardóttir, Andrea Ósk Arnarsdóttir, Ástrós Arna Róbertsdóttir, Hafdís Arna Hafþórsdóttir, Hera Ósk Ingvarsdóttir, Júlía Sif Andradóttir, Klara Rún Lúthersdóttir, Salka Karen Bjarnadóttir og Snædís Líf Einarsdóttir. Þær stóðu sig frábærlega og enduðu í 4. sæti.

Í liði 3. flokks 2 kepptu Ásdís Embla Atladóttir, Belen Meza Claix, Berglind Halla Heiðarsdóttir, Edda Kristný Davíðsdóttir, Emilía Rós Jónsdóttir, Emma Karen Ómarsdóttir, Íris Pálsdóttir, Júlíana Georgía M. Pétursdóttir, Kristín Harpa Ólafsdóttir, Nikolina Medic, Sunneva Lind Hermannsdóttir, Viktoría Rún Antonsdóttir og Viktoría Lilly Hafþórsdóttir. Þær stóðu sig allar afar vel og sýndu mikinn metnað og framfarir.

Drengirnir í KKE-hópnum létu ekki sitt eftir liggja. Þar kepptu Arnór Kristinsson, Brynjar Freyr Ólafs, Dawid Dziondziakowski, Hervar Freyr Pálsson, Jökull Frosti B. Freysson, Jökull Orri Agnarsson, Kristinn Karl Ólafs og Logi Þór Sigurðsson. Þeir áttu frábæra keppni og enduðu í 3. sæti.

Elstu iðkendur deildarinnar kepptu í 1. flokki/meistaraflokki í stökkfimi. Í liðinu voru Freyja Líf Kjartansdóttir, Harpa Guðrún Birgisdóttir, Hugrún Lea Elentínusardóttir, Jóna Margrét Ragnarsdóttir, Kamilla Magnúsdóttir, Lilja Björk Arnarsdóttir, Ólöf Hlín Ástþórsdóttir, Ósk Eyberg Rúnarsdóttir, Steindís Erla Brynjarsdóttir og Unnur Birta Jónsdóttir. Eftir harða og spennandi keppni náðu þær glæsilegu 2. sæti.

Allir keppendur stóðu sig afar vel og sýndu mikinn dugnað og metnað. Það er greinilegt að æfingar síðustu mánaða eru að skila sér og framfarirnar eru augljósar.

Fimleikadeild Keflavíkur er gríðarlega stolt af öllum sínum keppendum og þjálfurum. Framtíðin er björt og spennandi verður að fylgjast með þessum efnilegu iðkendum halda áfram að vaxa og dafna.

Áfram Keflavík! 💙

 

Myndasafn